Blaðrað og bullað
Dagsetning
23. febrúar 2012
Síður með flottum vörum ;)
28.01.2009 12:19:18 / aslaug74

2009

Gleðilegt ár allir saman !

Er loksins orðin móðursystir lítil gullfallegs rauðhærðs drengs :haha: Gutti fæddist 22 janúar - lét aðeins bíða eftir sér ;) Ég var búin að segja alla meðgönguna að þetta væri strákur og auðvitað hafði ég rétt fyrir mér :lol::lol:
Hér eru fallegu systkinin http://s3.frontur.com/img/11352/20090126161437_5.jpg



Ef þið viljð fleiri fréttir þá er það bara að koma í kaffi !!  Já eða kíkja á fésbókina ;)


» 1 hafa sagt sína skoðun

26.11.2008 18:57:42 / aslaug74

....

LOKSINS sé ég fyrir endan á þessu námi mínu :haha: Var að skrá mig í síðasta fagið og ritgerðina og stefni á útskrift í vor. Komin með BS ritgerðarefni og leiðbeinenda, verst hvað hann hefu miklu meiri tíma í þetta en ég ;) En það þýðir ekkert að kvarta og fyrst að honum finnst þetta svona áhugavert efni reynir maður bara að smitast af honum. Svo er bara að spýta í lófana og reyna að láta hlutina ganga upp!

Við fjölskyldan áttu stórgóða helgi en pabbi varð 60 ára og skipulögðum við óvissuhelgi fyrir hann. Mamma sótti hann í vinnuna á föstudaginn og fór með hann í stærðarinnar bíltúr sem endaði í bústað. Þar biðum við öll börnin hans og fylgifiskar og áttum rosa kósý helgi. Mikið borðað af góðum mat, drukkið öl og farið í pottinn. Held að það hafi allir farið heim með sælubros á vör :)

Jæja best að halda áfram að þykjast að læra - er með frestunaráráttu á MJÖG háu stigi þessa dagana - helv kryppu tal dregur úr manni allan þrótt 8| En þá kemur pollyanna í heimsókn og reynir að gera gott úr þessu. TD er hún byrjuð að setja upp jólin hér hjá Tröllunum aðeins ;) Og svo næstu helgi fæ ég LOKSINS að taka þátt í laufabrauðsgerð eftir 3ja ára hlé!


» 2 hafa sagt sína skoðun

05.11.2008 22:52:16 / aslaug74

Litli frændi

Kæru vinir og vandamenn

Daníel Páll Bjarndal Gunnarsson er rétt rúmlega 4 mánaða snáði sem er með meðfæddan lifrarsjúkdóm. Hann er sonur Gunnars Borg Jónssonar og Hönnu Bjarkar Bjarndal Einarsdóttur. Hann á líka alveg frábæra stóra systur sem heitir Sara Natalía Bjarndal Grétarsdóttir. En nú er svo komið að hann Daníel okkar þarf að gangast undir lifrarskipti þar sem lifrin hans er ekki að starfa sem skildi. Þetta er flókin aðgerð sem er ekki framkvæmd hér á landi, og munu þau fjölskyldan líklega dveljast í þónokkurn tíma erlendis. Veikindunum fylgir eins og gefur að skilja heilmikill kostnaður, auk vinnutaps. Til að auðvelda litlu fjölskyldunni lífið hefur verið ákveðið að stofna styrktarreikning hjá SPRON svo að þau þurfi vonandi sem minnstar áhyggjur að hafa af þessari hlið mála.  

Reikningsnúmerið er 1163-15-201890 og kennitalan er 290608-2870

Fyrir þá sem vilja fylgjast með Daníeli Páli þá er síðan hans www.barnanet.is/bumbubuiborgbjarndal

Munið að margt smátt gerir eitt stórt!


» 0 hafa sagt sína skoðun

18.10.2008 22:51:41 / aslaug74

Manual / orðabók - viltu skilja karlmenn?

"Ég finn þetta ekki"  =  Þetta féll ekki í hendurnar á mér

"Get ég hjálpað til við matinn ?"  = Af hverju er maturinn ekki tilbúinn?

"Það tæki alltof langan tíma að útskýra það"  = Ég hef ekki hugmynd um það hvernig það virkar. 

"Ég hreyfi mig meira þessa dagana" = Batteríin í fjarstýringunni eru ónýt. 

"Taktu þér smá pásu elskan, þú hamast alltof mikið" =  Ég heyri ekki í fótboltaleiknum fyrir helvítis ryksugunni.

"Þetta er áhugavert elskan"  = Ertu ennþá að tala.

"Elskan mín við þurfum ekki á dauðum hlutum að halda til að sanna ást okkar"  = Ég gleymdi brúðkaupsafmælinu aftur.

"Ég aðstoða við heimilisstörfin"  = Ég henti einu sinni óhreinu handklæði nálægt þvottakörfunni.

"Þú ert svakalega flott í þessum fötum"  = Gerðu það ekki prófa fleiri föt, ég er að deyja úr hungri.

"Ég saknaði þín"  = Ég finn ekki sokkaskúffuna mína, krakkarnir eru svangir og klósettpappírinn er búinn.

"Við deilum húsverkunum"  = Ég skít út, hún þrífur það.

"Mér varð hugsað til þín og keypti þessar rósir"  = Stelpan sem var að selja þau var algjör skutla

"Ég þarf ekki að lesa leiðbeiningarnar"  = Ég er fullfær um að klúðra þessu án þess að lesa mér til um það

"Við erum ekki villt, ég veit alveg hvar við erum"  =  Það sér enginn okkur á lífi aftur.


» 2 hafa sagt sína skoðun

14.09.2008 22:59:40 / aslaug74

Gæsahúð !!

Ég sit hérna með þessa líka fínu gæsahúð og veit ekki alveg hvort ég eigi að hlæja eða gráta.:!:
Málið er að við Óli fórum að leita að mjög mikilvægu skjali sem ég vissi nákvælega hvar var.....þegar ég bjó í Lambhaganum. :s Svo komu náttúrlega flutningar og ég passaði að þetta skjal ásamt öllum ljósmyndafilmunum okkar væru geymt á öruggum stað. Núna vantaði okkur þetta og við erum búin að leita gjörsamlega af okkur allt vit. Búin að snúa skrifstofunni á hvolf, taka háloftið í gegn, kláruðum að flytja restina af draslinu okkar úr Vallholtinu og snúa Birkivöllunum á hvolf. Aldrei fundum við þetta og ég var alveg orðin ráðþrota. Lagðist svo upp í rúm áðan og var að svæfa ASÓ þegar ég sagði í huganum við Ásu ömmu að fyrst að hún væri nú alltaf að sveima hérna þá gæti hún alveg sagt mér hvar þetta væri! Eftir 5 mín fékk ég staðfestingu á að hún heyrir vel í mér - ég vissi skyndilega hvar þetta allt saman væri, við örkuðum uppá loft og í fyrsta kassanum var þetta!! Ég fékk bara tár í augun og sagði við Óla að nú yrði ég helmingi meira myrkfælin en áður 8|8|


» 4 hafa sagt sína skoðun

19.08.2008 15:26:43 / aslaug74

Og þar með...

er skólinn byrjaður. Og það með látum - fyrirlestrar og verkefnaskil strax á fyrsta degi 8|8| En það þýðir ekkert að kvarta - hlustar engin á það þegar maður kemur sér sjálfur í þessa stöðu ;);) Væri samt alveg til í að hafa lengra frí en hei þetta er nú síðasti veturinn :!::!:

Svo verð ég nú að óska mömmu og pabbatil lukku - þau skelltu sér í það að kaupa sér eitt stk hús í síðustu viku :haha::haha: Mikið skemmtilegt og gaman - sérstaklega fyrir barnabörnin að koma í heimsókn og busla í heita pottinum og leika á leikvöllinum sem er í bakgarðinum :haha:;)


» 0 hafa sagt sína skoðun

31.07.2008 19:03:24 / aslaug74

Sumarfrí

Þar sem ekki er neitt sumarfrí hjá mér þetta árið ákvað ég að taka mér sumarfrí frá blogginu :haha:  En annars höfum við haft það ótrúlega gott í sumar -vinna og slappa af þess á milli. Ótrúlega þægileglt að þurfa ekki að hugsa um neinn skóla á kvöldin og vera komin heim úr vinnu um miðjan dag ;)
Svo er bara sp hvort maður eigi ekki að skella sér í ferðalag um helgina - elta sólina aðeins ;)

Muna að kvitta - gaman að sjá hver rekur nefið hingað inn :d


» 5 hafa sagt sína skoðun

16.06.2008 20:28:23 / aslaug74

Allt að gerast..


-Er hætt á Draugasetrinu, :haha::haha::haha:
- Bryjuð að vinna hjá bókhald og endurskoðunarskrifstofu :d:d:d
- Skólinn búin þetta vorið - allar eink komnar í hús og gekk svona lala - náði þó öllu ;)
- Tek mér EKKERT sumarfrí þetta sumarið:$:( En það skiptir engu þar sem ég vinn bara til kl 14 alla daga :haha::haha:
- Er þokkalega sólbrennd eftir sundferðir og göngutúra ;)
- Hlakka mikið til sumarsins, ætla að nota mér það óspart að sólin er ennþá á lofti þegar ég heim úr vinnunni :d

Þannig ykkur er alveg óhætt að kíkja í kaffi í sumar, ligg örugglega bara eins og skata á pallinum ;)


» 2 hafa sagt sína skoðun

31.05.2008 00:50:36 / aslaug74

púfff

Ég hef alltaf óttast það að eitthvað gerist og ég sé ekki nærri börnunum mínum á þeirri stundu. Og í gær í jarðskjálftanum gerðist það.
Ég var að versla í bónus í mínu mesta sakleysi þegar ósköpin riðu yfir og held ég svei mér þá að ég hafi brotið fjölda umferðalaga og svínað nokkra bíla þegar ég var að ná í börnin mín :(  TFÓ var í góðum gír hjá vini sínum, þeir voru úti að leika sér þegar skjálftin kom. Að sjálfsögðu var þeim mikið brugðið en báru sig mjög vel. Ég rak hann inn í bíl og við brunuðum í leikskólann til Arneyjar. Þá fyrst fékk ég sjokkið því litla skottið mitt var úti á túni með fóstrunum sínum alveg hágrátandi :cry:  Það var mjög sjokkerandi að sjá hana koma hlaupandi á móti mér alveg í taugaáfalli og skilja ekkert hvað hafi gengið á. Hún meiddist aðeins þegar stór trékassi hendist í hana og skartar hún þessum myndarlega marbletti á kinninni sinni í dag.
Þegar ég kom útí leikskóla náði ég loksins gsm sambandi við Óla, en hann var uppí Búrfelli, og ég get trúað því að það hafi verið ansi æst kona i símanum þá :$ Hann byrjaði nú að hlægja af mér þegar ég sagði að hann yrði að koma heim NÚNA þar sem það hefði komið suðurlandskjálfti og sagði að ég væri nú kannski full dramatísk, en þegar hann heyrði hvað ég var sjokkeruð og að ég væri með börnin úti á túni þá trúði hann mér og brunaði heim. Ég fór heim með börnin og sá að okkar hús var allt í lagi, nokkrir blómavasar brotnuðu og glerbrot útum allt. Þá ákvað ég að fara út í Vallholt og þar var Harpa greyjið alveg í rusli :cry: Húsið hjá m&p er ónýtt. Það eru allir veggir krosssprungnir og gólfin sömuleiðis. Þau geta ekki gist í húsinu, heldur eru í húsbílnum. Svo er auðvitað allt á tjá og tundri eins og hjá flestum öðrum. Aðrir í fjölskyldunni sluppu betur, nema náttúrlega allt fór úr skápum og þannig. Mikið hreinsunarstarf þar í gangi, sérstaklega hjá Hafdísi. Held að þar hafi nú ekki verið mikið óbrotið af glermunum, ef eitthvað þá. 
Ef þetta myndbrot er skoðað þá sést ég þarna í Bónus, í vinstra horninu við kexrekkan. Er búin að horfa á þetta og finnst eins og þetta sé myndbönd frá allt öðru landi, ótrúlegt að ég hafi verið þarna.
http://vefmidlar.visir.is/VefTV/?channelID=&programID=d93d6ddc-f3df-4c27-90e2-28d49738f306&mediaSourceID=f1541d8a-325e-4673-adc1-307bd9160029&mediaClipID=1edd1fc9-3553-4dfa-86a9-1b93b3190398


» 1 hafa sagt sína skoðun

27.05.2008 18:27:11 / aslaug74

Breytingar, skreytingar....

Loksins komið á hreint með næsta skref. Hætti á Draugunum 4. júlí :haha: Sp hvað þarnæsta skref verður, kemur allt í ljós ;)

Stjörnuspá dagsins á vel við :haha:
 Í stað þess að flýja heim vinnunnar, skaltu taka þér fimm mínútur fyrir djúpöndun eða göngutúr í hádeginu. Svo má teikna draumaheiminn og láta hann bera sig í burtu.


Á morgun mun LITLA systir mín ná mér í aldri, verður 25 ára :haha::haha::haha:


» 1 hafa sagt sína skoðun

15.05.2008 22:22:44 / aslaug74

....

Maður bara í fréttunum :klikk::klikk::!:
http://mbl.is/mm/frettir/innlent/2008/05/15/mikid_um_hradakstur_a_selfossi/

og 7.500 krónum fátækari 8|


» 2 hafa sagt sína skoðun

05.05.2008 10:31:38 / aslaug74

Hálfsögð frétt!

http://dv.is/frettir/lesa/8314

það vantar endirinn á þessa frétt. Ég meina var hún búin að pissa og bræddi þar með gat á snjóinn og féll því niður, var hún með buxunar á hælunum, pissaði hún niðri í sprungunni eða gat hún pissað bakvið bíl síðan þegar hún kom upp úr holunni???? Ég meina þetta eru upplýsingar sem vantar algjörlega í fréttina :!::!:

Fórum í sveitina á laugardaginn eftir að litla skottan var búin í ballett tímanum. Lágum í sundi þar til allir voru komnir með sveskjutær og putta, grilluðum geggjað gott læri og höfðum það ótrúlega mikið gott. Voru frekar slöpp samt, allri farir að sofa fyrir kl 12 á laugardagskvöldið 8| Svo í gær var legið í leti, farið í göngutúr og auðvitað sund ;) Óli og Gulli tóku hjólin með sér og OMG ég hélt að ég myndi deyja þegar mið "brussan" ákvað að taka smá rúnt :!: Var alveg búin að ákveða að vera með 112 tilbúin í símanum þar sem hún er "landsfræg" fyrir það að komast ekki heil í gegnum ákveðna hluti. ;):haha: En ótrúlegt en satt þá náði hún að komast heil í gegnum þetta - kannsk vegna þess að hún gat ekki skipt upp í 2 gír ;):lol::lol:

http://s3.frontur.com/img/30/20080506123027_17.jpg


» 4 hafa sagt sína skoðun

27.04.2008 23:32:01 / aslaug74

...

Meðalmóðir!!!

Suma daga ferðu fram úr súperkonunni en aðra daga slappar þú meira af og fylgist með barninu þínu að leik. Þú ert frábær móðir og ánægð með að taka þátt í öllu með barninu þínu.

Einmitt og þar hafið þið það:!::!::haha:   - ekki lýgur www.femin.is

(já ég er að læra - maður má líka taka pásur :$ )


» 0 hafa sagt sína skoðun

23.04.2008 18:34:07 / aslaug74

Er Sturla orðinn sturlaður??!!??

Vó hvað sumir sem taka að sér að vera í forsvari fyrir ákveðinn málaflokk, eru ALLS ekki sá aðili sem ætti að vera það. Ok, ég var alveg á bandi bílstjóra í fyrstu, þetta var mál sem snerti okkur öll, hækkandi bensínverð. En þegar þessi ákv aðilli kom ítrekað í fréttinar og vildi ekki hlusta á rök eða viðurkenna að þetta væri ekki alveg rétt mál sem hann færi með, þá svona já fór maður að að vera pirraður út í þetta og svo eftir daginn í dag þá hefur maður enga samúð lengur. Er frekar með kjánahroll yfir vitleysunni. En þessi mótmæli snúast náttúrlega ekki lengur um bensínverð, heldur hvíldartíma og annað sem snýr að atvinnubílstjórum. Þeir hafa ekki einu sinni haft fyrir því að koma því almennilega á framfæri í fréttum. Fólk er held ég ekki almennt upplýst um hvað þeir eru að mótmæla :!:
Sko þeir sem þekkja mig vel vita að ég hef mikla réttlætiskennd og vil að það sé farið að lögum og reglum.
Ok, hef ekki langt að sækja það ;)
En þegar er verið að úthrópa helli starfstétt fyrir það eitt að vinna vinnuna sín á þann eina hátt sem er hægt, þá verð ég pirruð og reið. Hvað átti lögreglan að gera þegar ólögleg mótmæli eru í gangi trekk í trekk af sömu aðilunum ? Áttu þeir að koma og segja" elsku bestu vinir mínir , viljið þið ekki bara fara heim í dag og leggja ykkur?" Nei, það er víst ekki svolleiðs sem þetta gengur. Bílstjórarnir fengu frest til að fjarlægja bílana sína, þeir sinntu því ekki og því greip lögreglan til sínna aðgerða, einfalt mál.
Leiðinlegt að þetta snýst núna um að löggan sé vondi kallinn sem gerði allt til að skemma fyrir bílstjórunum.
Einnig er mjög leitt að sjá að þarna voru unglingar að æsa sig yfir hlutum sem þeir höfðu ekki hundsvit á, höfðu ekki grænan um hvað mótmælin snerust um  - en hei allt betra en að vera í skólanum, eða hvað :!:


» 1 hafa sagt sína skoðun

17.04.2008 14:05:46 / aslaug74

tanaður í drasl

sp að minnka aaaaðeins brúnkukremið - en annars alveg frábært hjá þeim :)

http://www.nova.is/Pages/forsida.aspx


» 0 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 7
Klukkan
Talning
Niðurtalningu lokið!
Fyrir 1156 dögum
Koma jólin ;o)
Talning
Niðurtalningu lokið!
Fyrir 1024 dögum
Skil á BS ritgerð ;o)
Heimsóknir
Í dag:  6  Alls: 30562
RSS tengill